7.6.2008 | 17:42
Litla frænka Sydney fædd 7. júní
Lauga og Bobbi eignuðust í morgun litla stúlku úti í Ástralíu. Hún er kölluð Sydney eins og er en mun fá íslenskt nafn mjög fljótlega. Snótin var 10,5 merkur og 44,5cm, vissulega lítil á íslenskan mælikvarða en afskaplega falleg eins og þeir sjá sem heimsækja heimasíðu föður hennar; www.murenan.blog.is .
Elsku Lauga og Bobbi; innilega til hamingju með dótturina og gangi ykkur allt í haginn þarna í alltoflangtíburtistan.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Kærar þakkir fyrir góðar kveðjur ...
Páll Jakob Líndal, 8.6.2008 kl. 15:16
Til lukku með litlu frænku
Svava S. Steinars, 9.6.2008 kl. 01:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.