Í berjamó

Við fórum í berjamó um daginn með Jóhanni og Karen og þeirra börnum. Bjarni Jóhann var hinn rólegasti og fékk sér m.a. blund í berjalynginu. Jóhannsbörn voru í essinu sínu og nutu þess að skríða um móana í berjaleit. Afraksturinn hjá okkur Halldóri var nú ekkert til að hrópa húrra yfir en við náðum þó bláberjum í nokkra skyrskammta og svo tíndi Halldór fullan dall af krækiberjum handa sér.

IMG_0833
Namminamminamm...

IMG_0836
Berin fríð...

IMG_0861
Bjarni Jóhann hjálpar mömmu sinni að tína ber.

IMG_0871
Rakel Jóhanna auglýsir kítlustrá og fleira til sölu  - enda hægt að gera góðan "bissnes" með ber sem gjaldmiðil.

IMG_0849
Stefán Karl gefur Skottu ber. Hún var hins vegar þá þegar búin að éta nægju sína beint af lynginu og hafði því takmarkaðan áhuga á þessari góðvild kappans.

IMG_0855
Tara Rós með vinkonu sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava S. Steinars

Það er alltaf jafngaman að fara í berjamó.  Að geta bara sest niður og mokað upp í sig   Á næsta ári fær Bjarni Jóhann að smakka líka

Svava S. Steinars, 3.10.2008 kl. 14:02

2 identicon

OH hvað þetta lítur út fyrir að hafa verið notó hjá ykkur! Rosalega fallegt þarna, hvar er ykkar beitiland??

Maður fær bara heimþrá, þrátt fyrir kreppuna... ;)  

Enn og aftur kemur upp Eldjárns-ljóð í hugann sem er eitt af uppáhöldum Ísaks... 

'....krækiberin köld og römm

kóki og frönskum gera skömm.

Og aðalborin aðalber

ættu að heita fjallasmjer'.  

Eitthvað á þessa leið. :)

Björg, Ísak og Aron í CA (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 06:07

3 identicon

En gaman að rekast á ykkur hér! Sætasta fjölskyldan :)

Einstaklega andlitsfrítt fólk verður að segjast :)

Vonandi hafiði það sem allra allra best!

knúsímús :*

Harpa Þöll súperfrænka (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband