2.1.2009 | 23:21
Annar í jólum
Annan í jólum fórum við í mat til mömmu og pabba ásamt Erik og fjölskyldu. Þar er líka alltaf góður matur og góður félagsskapur.
Krakkarnir léku sér saman - eða eins mikið saman og von er á með 4 ára, 9 mánaða og 7 mánaða börn
Þessi gutti er afskaplega duglegur, farinn að standa upp og ganga með, setjast sjálfur upp og sýna hvað hann er stór svo eitthvað sé nefnt. Algjör rúsína
Amma með ungana sína þrjá. Eins og sést er hún ekki par hrifin af þeim
Þar með var jólaboðatörninni lokið og hægt að liggja á meltunni fram að áramótum
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Gleðilegt ár Helga, Halldór og Bjarni Jóhann. Takk fyrir myndaskammtinn. Það hefur greinilega verið nóg að gera hjá ykkur yfir jólin og gott að sleppa við eldamennskuna Kv.
Hanna F. Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 21:16
Já, amma er einmitt alveg miður sín yfir því að sitja uppi með öll krílin, tíhí ! Afar velheppnuð barnabörn verð ég að segja :)
Svava S. Steinars, 4.1.2009 kl. 02:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.