Gaur með lambhúshettu

DSC07727
Bjarni Jóhann er stöðugt að færa sig upp á skaftið. Um daginn var hann að leika einn inni í herbergi þegar hann fór að kalla á mig. Þá stóð hann voða stoltur í vagninum sínum og ruggaði sér fram og til baka og fannst hann voða sniðugur. Mamma hans var ekki jafn hrifin og sá bara í anda fyrstu slysóferðina nálgast óhugnanlega hratt...

DSC07735a
Hér sýnir módelið nýjustu prjónaflíkina á heimilinu - hlýja og góða lambhúshettu enda alveg komið veður fyrir svoleiðis. Hann er alveg súper sætur með hana eða það finnst mömmu hans allavegana og er bara ánægð með verkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava S. Steinars

Heheh já, fyrsta slysóferðin getur komið þegar maður síst býst við henni, það get ég sagt þér !  Frábær með lambhúshettuna

Svava S. Steinars, 7.10.2009 kl. 03:00

2 identicon

Dúlló!  Já magnað hvað þessum litlu gaurum finnst fyndið.... Aron er með eitthvað klifur-gen sem sleppti alveg Ísak, sem betur fer.  Finnst rosa fyndið þegar hann stendur uppá einhverju ofur völtu og hættulegu... aldraðri móður hans finnst þetta ekki jafn skemmtilegt.

Bjorgen-kjorgen (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband